Vísindi og sköpun
Sköpun er mikilvægur þáttur í námi og þroska barna. Skapandi starf á fyrst og fremst að beinast að ferlinu sjálfu, gleðinni, tjáningunni og náminu sem á sér stað þegar hugmyndir, tilfinningar og ímyndun fá að njóta sín.
Í vinnustndum í vísindi og sköpun er yfirmarkmið að:
- börnin njóti þess að taka þátt í skapandi ferli
- börnin finni til ánægju og gleði yfir eigin sköpunarkrafti
- börnin kynnist og vinni með margvíslegan efnivið
- börnin kynnist ólíkum eiginleikum efnis og hluta
- börnin kynnist fjarlægðum, rými og áttum
Skipulagðar vinnustundir í vísindum og sköpun eru í 10 vikur í senn, á haustönn og vorönn.